Formleg kvörtun vegna alvarlegra brota Krabbameinsfélags Íslands á siðareglum Almannaheilla
Formleg kvörtun til stjórnar Almannaheilla vegna meintra alvarlegra brota Krabbameinsfélags Íslands á siðareglum samtakanna. Erindið varðar ráðstöfun 75 milljóna króna til Framfarasjóðs án sérstakrar samþykktar aðalfundar, gjaldfærslu fjárhæðarinnar árið 2025 þótt sjóðurinn væri ekki formlega stofnaður fyrr en 2026, rangar upplýsingar í ársreikningi og ítrekað svarleysi við fjárhagslegum fyrirspurnum. Þess er krafist að stjórn Almannaheilla taki málið til formlegrar rannsóknar, afli nauðsynlegra gagna, úrskurði hvort brotið hafi verið gegn siðareglum samtakanna og taki afstöðu til nauðsynlegra úrbóta. Jafnframt er krafist skriflegrar og rökstuddrar niðurstöðu um ábyrgð stjórnenda KÍ á þessum alvarlegu álitaefnum.
75 milljóna króna styrkur Krabbameinsfélags Íslands til sjóðs sem ekki var til
Krabbameinsfélag Íslands gjaldfærði 75 milljónir króna sem styrk árið 2025 til sjóðs sem var ekki stofnaður fyrr en 2026. Féð var í vörslu PwC, sem áritaði ársreikninginn fyrirvaralaust. Reikningurinn var lagður fyrir aðalfund án athugasemda og samþykktur. Gögnin vekja spurningar um gjaldfærsluna, upplýsingagjöf stjórnenda og óhæði endurskoðandans.
Krabbameinsfélag Íslands og vörumerkjavæðing krabbameins
Við höfum kynnst því hvernig alvarlegur sjúkdómur breytir smám saman öllu því sem áður þótti sjálfsagt. Hvernig hver ný rannsókn getur breytt framtíðinni, hvernig daglegt líf þrengist og hvernig sorgin verður hluti af tilverunni löngu áður en nokkur endalok verða.Þess vegna er þessi glæsilega, glaðværa og sífellt umfangsmeiri markaðssetning ekki aðeins framandi í mínum augum. Hún er særandi. Hún virðist tilheyra allt öðrum heimi en þeim sem við höfum búið við, þótt hún eigi að fara fram í nafni fólks sem glímir við þennan sjúkdóm.
Smá skondið að Sigmundur Davíð vilji Baudenbacher til varnar Íslandi
Þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson lagði til að Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, yrði fenginn til að verja Ísland í máli ESA vegna bókunar 35 vakti það athygli. Ekki síst vegna þess að Baudenbacher hefur sjálfur um áratuga skeið verið einn áhrifamesti talsmaður þess að EES-rétturinn hafi raunverulegt gildi gagnvart ríkjunum. Greinin fjallar um þetta óvenjulega val, feril Baudenbachers og þá dóma og deilur sem gera tillöguna að minnsta kosti dálítið skondna.
Ráðherrann, lagasmiðurinn og þingmaðurinn, þrjú hlutverk Sigríðar Á. Andersen í máli bókunar 35
ESA hefur nú höfðað samningsbrotamál gegn Íslandi vegna ófullnægjandi innleiðingar bókunar 35. Á sama tíma vilja formenn Framsóknarflokksins og Miðflokksins að Alþingi bíði með afgreiðslu frumvarpsins þar til EFTA-dómstóllinn hefur úrskurðað. Í tilefni af þessari stöðu er sérstaklega áhugavert að fara yfir þrjú ólík hlutverk Sigríðar Á. Andersen í málinu: ráðherrans, lagasmiðsins og þingmannsins.
Er bókun 35 ný ákvörðun eða gömul skuldbinding?
Umræðan um bókun 35 hefur einkum snúist um fullveldi, framsal valds og stöðu EES-reglna gagnvart íslenskum lögum. En hvað felst í bókuninni í raun, hvers vegna er hún komin á dagskrá eftir meira en þrjátíu ár og hvaða áhrif hefði innleiðing hennar á vald Alþingis og réttindi einstaklinga og fyrirtækja?
Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn
Þegar Ólafur Ragnar Grímsson hvatti þjóðina til að hafna því að hefja aðildarviðræður við ESB á ný var eðlilegt að spyrja hversu mikið vægi ferill hans ætti að hafa í þeirri ákvörðun. Ég skoða afstöðu hans til EFTA, NATO og EES, hlutverk hans í Icesave og bilið milli stjórnmálaímyndar og varanlegra verka.
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands
Í júní 2026 birti ég þessa grein á Vísi um Krabbameinsskrá og meðferð viðkvæmra heilsufarsupplýsinga. Ég færi þar rök fyrir því að lagabreyting árið 2025 hafi fellt brott heimild landlæknis til að fela Krabbameinsfélagi Íslands rekstur skrárinnar. Samt héldu upplýsingar um krabbameinssjúklinga áfram að berast félaginu.
Eru fjáröflunarherferðir KÍ, Mottumars og Bleika slaufan, siðferðilega réttlætanlegar?
Hvernig ráðstafar Krabbameinsfélag Íslands framlögum almennings? Í greininni rýni ég í fjármál og forgangsröðun félagsins og spyr hvort fjáröflunarherferðirnar Mottumars og Bleika slaufan séu siðferðilega réttlætanlegar án aukins gagnsæis og meiri framlaga til krabbameinsrannsókna.
Hugleiðing um Ljósið og Krabbameinsfélag Íslands
Þessi hugleiðing birtist fyrst á Facebook-síðu minni í nóvember 2025 og vakti mikla athygli. Hún spratt af persónulegri reynslu okkar hjóna og því óþægilega bili sem við upplifðum milli ímyndar Krabbameinsfélags Íslands og starfsemi þess. Síðari athugun mín á fjármálum og forgangsröðun félagsins hefur styrkt þá skoðun mína að þar hafi orðið alvarleg afvegaleiðing.
Áratuga uppgjöf gagnvart stjórn efnahagsmála og ESB sem valkostur
Greinin birtist upphaflega á vef Já Ísland 13. nóvember 2012, þegar aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins stóðu yfir. Umræðan var á þeim tíma mun harðari og pólitískari en hún er nú og orðalag greinarinnar ber þess greinileg merki. Hún er birt hér óbreytt sem heimild um umræðuna og sjónarmið höfundar á þeim tíma. Ekki hefur verið reynt að færa orðalag, röksemdir eða einstakar staðreyndir til nútímans.
Endurheimtum fullveldið, göngum í Evrópusambandið
Greinin birtist upphaflega á vef Já Ísland 13. mars 2012. Getur Ísland endurheimt áhrif á reglur sem það tekur upp með því að ganga í Evrópusambandið? Í þessari grein frá 2012 fjalla ég um fullveldi innan EES, aðildarviðræðurnar og þátt Ólafs Ragnars Grímssonar í Evrópuumræðunni fyrir forsetakosningarnar.
Lýðræðishallinn: Ísland og Evrópusambandið
Í þessari grein frá janúar 2012 fjalla ég um lýðræðishalla Evrópusambandsins, en beini athyglinni einnig að ákvörðunum íslenskra stjórnvalda um sameiginlegar eignir og stöðu Íslands innan EES. Getur lýðræðishalli líka orðið til hér heima, jafnvel þótt Alþingi og sveitarstjórnir hafi formlegt umboð til að taka ákvarðanir?
Mun Evran bjarga almennum borgurum og atvinnulífinu úr klóm ábyrgðalausra stjórnmála- og bankamanna?
Skrifuð 12. desember 2011, þegar óvissa ríkti um framtíð evrunnar. Greinin fjallar um ábyrgð stjórnmálamanna og banka á skuldakreppunni og færir rök fyrir því að Íslendingar ljúki aðildarviðræðum áður en þjóðin taki afstöðu til samnings. Í eftirmála frá 2026 er litið yfir viðbrögð Evrópu og það sem síðar kom í ljós um orsakir kreppunnar.
Hvaða forsendur á að leggja til grundvallar þegar aðild að ESB er metin?
Greinin var skrifuð 14. nóvember 2011, þegar aðildarviðræður Íslands og ESB stóðu yfir. Þar velti ég fyrir mér hvaða áhrif hugsanleg aðild gæti haft á heimilin, m.a. á vexti, verðtryggingu, matarverð, kaupmátt og stöðu krónunnar, og hvers vegna almenningur ætti að fá að taka afstöðu til fullgerðs samnings. Margar þessara spurninga eru enn áleitnar.