Í ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands (KÍ) fyrir árið 2025 eru 75.000.000 króna gjaldfærðar sem veittur styrkur til stofnunar Framfarasjóðs Krabbameinsfélagsins. Í skýrslu stjórnar er fullyrt að félagið hafi stofnað sjóðinn á árinu 2025.1
Gögn sem lögð voru fyrir Sýslumanninn á Vestfjörðum og Skattinn vegna stofnunar sjóðsins sýna hins vegar að hann var stofnaður á árinu 2026. Í árslok 2025 voru fjármunirnir á vörslureikningi endurskoðunarfyrirtækis félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf. (PwC), sem áritaði ársreikninginn fyrirvaralaust. Ellefu dögum eftir að framkvæmdastjóri KÍ undirritaði ársreikninginn skrifaði hún endurskoðendum félagsins að hún væri „loksins“ komin með flest það sem þyrfti til að „ganga formlega frá stofnun Framfarasjóðsins“.35
Hér er ekki fullyrt að refsiverð háttsemi hafi verið sönnuð eða að tilteknir einstaklingar beri á henni sök. Greinin rekur afmörkuð og skjalfest atriði sem varða 75 milljónir króna og áreiðanleika ársreiknings almannaheillafélags sem byggir starfsemi sína á gjöfum almennings.
Efnisyfirlit · fara beint í kafla
12 atburðir · frá millifærslu til fréttar
Atburðarásin
Sjóðurinn sem sagður er stofnaður á árinu 2025 fékk staðfesta skipulagsskrá 10. ágúst 2026, og fjórum dögum síðar barst Skattinum umsókn um kennitölu fyrir hann.
| Dagsetning | Atburður |
|---|---|
| Millifærsla 75.000.000 kr. millifærðar af bankareikningi KÍ á reikning PwC kl. 14:58 með skýringunni „mf sjodur a PWC“.3 | |
| Árslok Reikningsári lýkur. Sjóðurinn hefur hvorki skipulagsskrá, stjórn né kennitölu.5 | |
| Stjórn skipuð Stjórn sjóðsins skipuð á fundi, samkvæmt tilkynningu til sýslumanns.5 | |
| Ársreikningur undirritaður Stjórn og framkvæmdastjóri KÍ undirrita ársreikning 2025 með þeirri staðhæfingu að félagið hafi stofnað sjóðinn á árinu 2025. PwC áritar reikninginn fyrirvaralaust.1 | |
| Aðalfundur Aðalfundur KÍ. Formaður kynnir stofnun sjóðsins í skýrslu stjórnar en engin tillaga um stofnunina er lögð fram. Ársreikningurinn samþykktur.4 | |
| 11.–19. maí 2026 | Tilkynning undirrituð Stjórnarmenn sjóðsins og prókúruhafar undirrita tilkynningu um fyrstu stjórn.5 |
| Beiðni um staðfestingu Framkvæmdastjóri KÍ óskar eftir staðfestingu PwC á greiðslu stofnframlagsins til að „ganga formlega frá stofnun Framfarasjóðsins“.3 | |
| Varsla staðfest PwC staðfestir að féð verði varðveitt á vörslureikningi „þar til stofnun Framfarasjóðsins er gengin í gegn“.3 | |
| 1.–2. júlí 2026 | Skipulagsskrá undirrituð |
| Skipulagsskrá staðfest Sýslumaðurinn á Vestfjörðum staðfestir skipulagsskrána. Sjóðurinn fær númer 1947 á sjóðaskrá.6 | |
| Umsókn um kennitölu Skatturinn tekur við umsókn um kennitölu fyrir sjóðinn.5 | |
| Frétt birt KÍ birtir frétt um að sjóðurinn hafi tekið formlega til starfa í ágúst.7 |
Röng staðhæfing í skýrslu stjórnar
Í skýrslu stjórnar, sem fylgir ársreikningi KÍ fyrir árið 2025 og stjórn og framkvæmdastjóri undirrituðu 8. maí 2026, segir orðrétt:
„Á árinu 2025 stofnaði félagið Framfarasjóð Krabbameinsfélagsins með 75.000.000 kr. stofnframlagi.“1
Þessi staðhæfing var röng þegar hún var sett fram:
- Í árslok 2025 hafði sjóðurinn hvorki skipulagsskrá, stjórn né kennitölu. Stjórn hans var skipuð á fundi 5. maí 2026, skipulagsskráin var undirrituð 1.–2. júlí 2026 og staðfest af sýslumanni 10. ágúst 2026, og Skattinum barst umsókn um kennitölu 14. ágúst 2026.56
- PwC staðfesti 28. maí 2026 að féð yrði varðveitt þar til stofnun sjóðsins væri gengin í gegn.3
- Í frétt KÍ 14. október 2026 segir: „Stofnfé sjóðsins er 75 milljónir króna og tók hann formlega til starfa í ágúst.“ Formaður félagsins talar þar um „stofnun Framfarasjóðsins á 75 ára afmæli félagsins“, en það afmæli er á árinu 2026.7
Framkvæmdastjóri KÍ, Halla Þorvaldsdóttir, sem undirritaði ársreikninginn 8. maí 2026, skrifaði endurskoðendum félagsins hjá PwC ellefu dögum síðar, 19. maí 2026:
„Loksins er ég komin með flest það sem þarf til að ganga formlega frá stofnun Framfarasjóðsins en til þess þarf ég staðfestingu frá ykkur á greiðslu stofnframlagsins.“3
Stjórn sjóðsins hafði þá verið skipuð á fundi 5. maí 2026, þremur dögum áður en ársreikningurinn var undirritaður. Gögnin benda því eindregið til þess að stjórnendum KÍ hafi verið ljóst, þegar þeir undirrituðu ársreikninginn, að sjóðurinn hefði ekki verið stofnaður á árinu 2025 heldur væri stofnun hans enn í undirbúningi. Sex þeirra stjórnarmanna sem undirrituðu ársreikninginn undirrituðu síðan skipulagsskrá sjóðsins í júlí 2026.
Aðalfundurinn 9. maí 2026
Á aðalfundi KÍ var stofnun sjóðsins ekki lögð fram sem tillaga. Samkvæmt fundargerð kynnti formaður hana í skýrslu stjórnar, og fjármálastjóri greindi frá því við kynningu ársreikningsins að erfðagjöfum hefði verið „veitt annars vegar til Vísindasjóðs og hins vegar til stofnunar Framfarasjóðs“. Á sama fundi lagði stjórn hins vegar fram sérstakar tillögur, sem bornar voru undir atkvæði, um að 75 milljónum króna yrði veitt til að styðja við krabbameinsáætlun og að 900 milljónir króna yrðu lagðar í skilgreindan varasjóð.4
Aðalfundi var hvergi greint frá því að stofnframlagið væri í vörslu PwC, að sjóðurinn hefði ekki verið stofnaður eða að stjórn hans hefði verið skipuð fjórum dögum fyrr. Lög KÍ heimila stjórn að „stofna til sjálfstæðra starfseininga innan félagsins“ (4. gr., leturbreyting mín), en í fundargerðinni er hvergi að finna sérstaka samþykkt um stofnun sjálfstæðs lögaðila utan félagsins eða ráðstöfun 75 milljóna króna til hans.24
Gjaldfærslan og áhrif hennar á ársreikninginn
Í skýringu 6 í ársreikningnum eru 75.000.000 kr. færðar meðal veittra styrkja undir heitinu „Styrkur til stofnunar Framfarasjóðs Krabbameinsfélagsins“. Veittir styrkir eru þar alls sagðir 300.523.065 kr. Færslan nemur því um fjórðungi allra styrkja sem félagið segist hafa veitt á árinu.1
Fjárhæð veittra styrkja er sá mælikvarði sem gefendur, erfðagjafar og almenningur nota helst til að meta hve stór hluti söfnunarfjár skilar sér til þeirra verkefna sem safnað er fyrir. Færslan hækkaði þá fjárhæð um þriðjung, úr 225,5 milljónum króna í 300,5 milljónir, þótt styrkþeginn væri ekki til á reikningsárinu.
Samkvæmt ársreikningnum nam hagnaður ársins 2025 113.202.140 kr. Án gjaldfærslunnar hefði hagnaðurinn verið 188.202.140 kr., að öðru óbreyttu. Gjaldfærslan lækkaði því birta afkomu um 75 milljónir króna, sem samsvarar um tveimur þriðju hlutum birts hagnaðar. Hér er því um verulega fjárhæð að ræða í hvaða skilningi sem er.1
Hvar voru peningarnir í árslok 2025?
Samkvæmt tilkynningu um millifærslu, sem PwC sendi framkvæmdastjóra KÍ 28. maí 2026, voru 75.000.000 kr. millifærðar af reikningi KÍ á reikning PricewaterhouseCoopers ehf. mánudaginn 29. desember 2025 kl. 14:58, með skýringunni „mf sjodur a PWC“. Viðtakandi greiðslunnar var því ekki Framfarasjóðurinn, sem var ekki til, heldur endurskoðunarfyrirtæki KÍ.
Í sama tölvupósti, sem Sara Henný H. Arnbjörnsdóttir, löggiltur endurskoðandi og meðeigandi hjá PwC, sendi í svari við beiðni framkvæmdastjórans, segir:
„Við staðfestum að búið er að leggja 75 milljónir króna inn á vörslureikning PwC sem við munum varðveita þar til stofnun Framfarasjóðsins er gengin í gegn og búið að stofna bankareikning fyrir sjóðinn sem hægt er að leggja umrædda fjárhæð inn á.“3
Féð var samkvæmt þessu í vörslu PwC með skilyrði: það skyldi afhent sjóðnum þegar hann hefði verið stofnaður og fengið bankareikning. Ekkert liggur fyrir um hvað hefði orðið um féð ef ekki hefði orðið af stofnuninni. Hafi KÍ átt endurkröfu á hendur PwC voru fjármunirnir í reynd áfram eign KÍ í árslok 2025. Þá bar að færa þá sem eign í vörslu þriðja aðila, eftir atvikum með skýringu og sérgreiningu innan eigin fjár, en ekki sem veittan styrk.
Ákvörðun um fyrirhugaða stofnun sjóðs jafngildir hvorki stofnun sjálfstæðs lögaðila né fullnaðarráðstöfun stofnfjár hans. Engin gögn sem mér eru aðgengileg sýna að stjórn KÍ hafi tekið formlega ákvörðun um stofnun sjóðsins á árinu 2025.
Féð var í vörslu PwC frá 29. desember 2025 þar til sjóðurinn hafði fengið kennitölu og bankareikning, í fyrsta lagi um miðjan ágúst 2026, eða í að minnsta kosti sjö og hálfan mánuð. Hinn 21. október 2026 spurði ég fjármálastjóra KÍ hvernig farið hefði verið með áfallna vexti af fénu til ársloka 2025. Svar hefur ekki borist. Ósvarað er hvort vörslureikningurinn bar vexti á öllum vörslutímanum, hver naut þeirra og hvernig þeir voru færðir í bókhaldi.8
Ég hef áður beint fyrirspurnum til KÍ um gjaldfærsluna og forsendur hennar en ekki fengið skýringar.
Hlutverk PwC
PwC tók við 75 milljónum króna til vörslu í desember 2025 og annaðist jafnframt endurskoðun ársreiknings KÍ fyrir árið 2025, þar sem sömu fjárhæð var færð til gjalda og út úr eignum félagsins sem veittur styrkur. Sara Henný H. Arnbjörnsdóttir var áritunarendurskoðandi ársreikningsins og staðfesti jafnframt vörslu fjármunanna gagnvart framkvæmdastjóra KÍ vegna stofnunar sjóðsins.
Í áritun sinni tekur PwC fram að skýrsla stjórnar sé undanskilin endurskoðun, en að endurskoðandanum beri að yfirfara hana og meta hvort hún sé „í verulegu ósamræmi við ársreikninginn eða skilning sem við höfum aflað við endurskoðunina“. Niðurstaðan var: „Við höfum ekki greint atriði sem ber að greina sérstaklega frá.“ PwC varðveitti þó sjálft stofnframlagið þar til stofnun sjóðsins væri gengin í gegn. Endurskoðandanum mátti því vera ljóst að staðhæfing skýrslu stjórnar um stofnun sjóðsins á árinu 2025 stæðist ekki.1
Samkvæmt 23. gr. laga nr. 94/2019 um endurskoðendur og endurskoðun skulu endurskoðandi og endurskoðunarfyrirtæki vera óháð viðskiptavini sínum í reynd og ásýnd. Samkvæmt 24. gr. sömu laga má endurskoðandi ekki annast endurskoðun ef til staðar er ógnun við óhæði, þar á meðal sjálfsmatsógnun, sem ekki verður dregið úr með viðeigandi varúðarráðstöfunum.
Endurskoðunarfyrirtækið var í þeirri stöðu að meta reikningshaldslega meðferð fjármuna sem það hafði sjálft í vörslu, og árita fyrirvaralaust reikningsskil þar sem þeir voru taldir farnir úr eigu félagsins. Ósvarað er hvort endurskoðandinn mat þessa stöðu, hvaða varúðarráðstafanir voru gerðar og á hvaða gögnum sú niðurstaða byggðist að gjaldfærslan væri réttmæt.
Lögin sem gilda
KÍ er samkvæmt 1. gr. laga félagsins félag til almannaheilla sem starfar í samræmi við lög nr. 110/2021 um félög til almannaheilla. Samkvæmt 22. gr. þeirra laga er félaginu skylt að færa bókhald og semja ársreikning í samræmi við lög nr. 145/1994 um bókhald. Félagið er jafnframt bókhaldsskylt samkvæmt 1. gr. bókhaldslaga, enda hefur það á hendi fjáröflun og fjárvörslu.
Samkvæmt skýringu 2 er ársreikningurinn gerður í samræmi við lög um ársreikninga, og PwC áritar hann á þeirri forsendu að hann gefi glögga mynd „í samræmi við lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur“. Þótt lög nr. 3/2006 um ársreikninga taki samkvæmt 1. gr. þeirra ekki til félaga á borð við KÍ hefur félagið þannig sjálft valið þær reikningsskilareglur sem meta ber ársreikninginn eftir, sbr. 30. gr. og 5. tölul. 38. gr. bókhaldslaga.
Rangur eða villandi ársreikningur er ekki formsatriði. Í lögunum segir meðal annars:
- Samkvæmt 5. tölul. 37. gr. bókhaldslaga telst það meiri háttar brot þegar ársreikningur „er rangfærður að öllu leyti eða hluta“.
- Samkvæmt 5. tölul. 38. gr. sömu laga er það brot þegar ársreikningur er ekki gerður þannig „að hann gefi skýra mynd af rekstrarafkomu á reikningsárinu og efnahag í lok þess í samræmi við lög þessi og settar reikningsskilareglur“.
- Í 36. gr. sömu laga er kveðið á um refsiábyrgð vegna brota sem framin eru af ásetningi eða stórfelldu gáleysi.
- Samkvæmt a-lið 34. gr. laga nr. 110/2021 varðar það sektum eða fangelsi allt að tveimur árum að „skýra vísvitandi rangt eða villandi frá högum félags“, meðal annars í ársreikningi eða yfirlýsingum til aðalfundar.
Spurningar sem er ósvarað
- Hvaða bókhaldsgögn og fylgiskjöl lágu að baki gjaldfærslu 75 milljóna króna árið 2025 og hver var mótfærsla hennar?
- Hvaða samningur eða fyrirmæli giltu um vörslu fjármunanna hjá PwC, hver hafði ráðstöfunarrétt yfir þeim og gat KÍ krafist endurgreiðslu þeirra, til dæmis ef ekki yrði af stofnun sjóðsins?
- Tók stjórn KÍ formlega ákvörðun á árinu 2025 um stofnun sjóðsins og greiðslu stofnframlagsins, og ef svo er, hvenær og með hvaða hætti?
- Hvers vegna var fullyrt í skýrslu stjórnar 8. maí 2026 að sjóðurinn hefði verið stofnaður á árinu 2025, þegar stjórn hans hafði verið skipuð þremur dögum fyrr og framkvæmdastjóri vann enn að því að ganga formlega frá stofnun hans?
- Hvaða upplýsingar fengu stjórn, félagskjörnir skoðunarmenn og aðalfundur um raunverulega stöðu fjármunanna og sjóðsins áður en ársreikningurinn var undirritaður og samþykktur?
- Hvaða gögnum aflaði PwC við endurskoðun gjaldfærslunnar og hvernig var metið að skilyrði hennar væru uppfyllt?
- Hvernig yfirfór PwC skýrslu stjórnar, og hvernig samrýmist sú niðurstaða að ekkert bæri að greina frá vitneskju PwC um að féð væri í vörslu fyrirtækisins þar til sjóðurinn yrði stofnaður?
- Hvernig mat PwC óhæði sitt í ljósi vörsluhlutverksins og hvaða varúðarráðstafanir voru gerðar?
- Bar vörslureikningurinn vexti á vörslutímanum, hver naut þeirra og hvernig voru þeir færðir í bókhaldi?
- Leiddu framangreind atriði til verulegrar rangfærslu í ársreikningi KÍ fyrir árið 2025 og, ef svo er, varð hún vegna mistaka, stórfellds gáleysis eða ásetnings?
Svörin liggja í frumgögnum: vörslusamningum, bankayfirlitum, fundargerðum stjórnar KÍ, bókhaldsfylgiskjölum, samskiptum KÍ og PwC og endurskoðunargögnum.
Niðurstaða
Atburðarásin verður ekki skýrð með almennri tilvísun til ákvörðunar um stofnun sjóðs eða þeirrar staðreyndar að sjóðurinn var síðar stofnaður. Fyrir liggur að 75 milljónir króna voru gjaldfærðar sem veittur styrkur árið 2025 og að stjórn og framkvæmdastjóri fullyrtu í ársreikningi að sjóðurinn hefði verið stofnaður það ár.
Í árslok 2025 hafði sjóðurinn hvorki skipulagsskrá, stjórn né kennitölu, og féð var í vörslu endurskoðunarfyrirtækis félagsins með skilyrði um afhendingu. Ellefu dögum eftir undirritun ársreikningsins vann framkvæmdastjóri félagsins að því að ganga formlega frá stofnun sjóðsins. Sama endurskoðunarfyrirtæki og varðveitti féð áritaði ársreikninginn fyrirvaralaust og gerði ekki athugasemd við staðhæfingu skýrslu stjórnar.
KÍ er almannaheillafélag sem aflaði á árinu 2025 rúmlega eins milljarðs króna með fjáröflun, auk verulegra erfðagjafa, og nýtur sérstakrar skattalegrar stöðu. Gefendur verða að geta treyst því að reikningsskil félagsins gefi rétta mynd af því hvernig gjöfum þeirra er ráðstafað.
Heimildir
- Ársreikningur Krabbameinsfélags Íslands fyrir árið 2025. PDF · Krabbameinsfélag Íslands ↑ Til baka í texta
- Lög Krabbameinsfélags Íslands. Krabbameinsfélag Íslands ↑ Til baka í texta
- Tölvupóstsamskipti framkvæmdastjóra KÍ og PwC 19. og 28. maí 2026, ásamt tilkynningu um millifærslu 29. desember 2025.Óbirt gögn höfundar · vefslóð ekki tilgreind. ↑ Til baka í texta
- Fundargerð aðalfundar Krabbameinsfélags Íslands 9. maí 2026. PDF · Krabbameinsfélag Íslands ↑ Til baka í texta
- Gögn lögð fyrir Sýslumanninn á Vestfjörðum og Skattinn vegna Framfarasjóðsins: tilkynning um fyrstu stjórn, staðfesting skipulagsskrár 10. ágúst 2026 og umsókn um kennitölu, móttekin 14. ágúst 2026.Óbirt gögn höfundar · vefslóð ekki tilgreind. ↑ Til baka í texta
- Skipulagsskrá Framfarasjóðs Krabbameinsfélags Íslands, nr. 911/2026 í B-deild Stjórnartíðinda. Stjórnartíðindi · B-deild ↑ Til baka í texta
- Frétt Krabbameinsfélags Íslands 14. október 2026, „Krabbameinsfélagið stofnar Framfarasjóð“. Krabbameinsfélag Íslands ↑ Til baka í texta
- Fyrirspurn höfundar til fjármálastjóra KÍ 21. október 2026.Óbirt gögn höfundar · vefslóð ekki tilgreind. ↑ Til baka í texta