Kynningarmyndband Bleiku slaufunnar frá 2023
Kynningarmyndband Bleiku slaufunnar frá 2023 er líklega ein ömurlegasta auglýsing sem ég hef nokkurn tíma séð. Hún er að mínu mati lýsandi fyrir þá smekkleysu og það skilningsleysi á eðli krabbameins sem hefur orðið æ meira áberandi í fjáröflunar- og markaðsstarfi Krabbameinsfélags Íslands. Félag sem var stofnað til að berjast gegn krabbameini hefur smám saman gert baráttuna gegn sjúkdómnum að stílhreinu vörumerki til að afla fjár sem að verulegu leyti er varið í annað en forvarnir og rannsóknir á krabbameini. Auglýsingar, hönnunarvörur, glæsilegar uppákomur og kynningarherferðir minna æ meira á markaðssetningu lúxusvarnings. Sjúkdómurinn sjálfur, þjáningin og þau þungu örlög sem honum fylgja virðast orðin að bakgrunni í glæsilega hannaðri sýningu.
Og félagið heldur áfram á sömu braut þar sem krabbamein er partý en ekki sjúkdómur. Í ár er gullhúðuð sparislaufa, skreytt Swarovski-steinum, seld á 22.900 krónur. Aðgangur að opnunarhátíð Bleiku slaufunnar í Perlunni kostaði 8.900 krónur. Innifalin voru samstöðutáknið, skemmtidagskrá og aðgangur að sýningum og íshelli. Í fjölmiðlum birtast síðan viðtöl við markaðsfólk, vörumerkjaspekúlanta og auglýsingasérfræðinga þar sem hönnunin, hugmyndavinnan, ímyndin og árangur herferðarinnar verða sjálfstætt umræðuefni.
Þetta er eins og að horfa á lúxusvæðingu þjáningar.
Og ábyrgðin á þessari þróun liggur hjá Krabbameinsfélagi Íslands. Það er félagið sjálft sem ákveður hvaða mynd það vill draga upp af krabbameini, hvað það telur viðeigandi í nafni sjúkdómsins og hvaða mörk það setur markaðsstarfi sínu.
Mér finnst þessi þróun minna sífellt meira á dans kringum gullkálfinn. Þar dansa stjórnendur, fyrirtæki, markaðsfólk og ýmsir áhrifamenn. Á opnunarhátíðinni í ár var forseti Íslands einnig mættur og ljáði viðburðinum virðuleika embættisins. Að mínu mati sýndi sú þátttaka alvarlegan dómgreindarbrest. Ég upplifi hana sem niðurlægjandi fyrir fólk sem glímir við krabbamein og aðstandendur þess. Forseti Íslands á að sýna þeim veruleika meiri skilning en felst í því að taka þátt í upphafningu vörumerkis.
En krabbamein er ekki vörumerki.
Krabbamein er háalvarlegur sjúkdómur, oft lífsógnandi, sem getur umturnað lífi bæði einstaklinga og fjölskyldna. Það er heimur sjúkrabíla, bráðamóttöku, skurðaðgerða, geislameðferða, lyfjagjafa, rannsókna og langrar, oft óbærilegrar biðar eftir niðurstöðum. Heimur þar sem fólk þarf hvað eftir annað að taka við fréttum sem enginn vill heyra. Þar sem færni, sjálfstæði og persónuleiki þess sem veikist geta tekið óafturkræfum breytingum. Þar sem framtíðaráform hverfa, fjölskyldur þurfa að endurskilgreina líf sitt og horfast ítrekað í augu við endalok lífsins.
Það er ósanngjarnt að ætlast til hetjudáða eða æðruleysis af fólki sem lendir í slíkum aðstæðum. Enginn velur sér þennan veruleika og enginn er í raun undir það búinn að horfa upp á manneskju sem hann elskar glíma við ólæknandi sjúkdóm mánuðum eða árum saman. Það er alla vega ekki tilefni til að fara í stuð, dansa og rokka.
Þetta er sá heimur sem ég, eiginkona mín og dætur okkar höfum lifað í meira en tvö ár. Við höfum kynnst því hvernig alvarlegur sjúkdómur breytir smám saman öllu því sem áður þótti sjálfsagt. Hvernig hver ný rannsókn getur breytt framtíðinni, hvernig daglegt líf þrengist og hvernig sorgin verður hluti af tilverunni löngu áður en nokkur endalok verða.
Þess vegna er þessi glæsilega, glaðværa og sífellt umfangsmeiri markaðssetning ekki aðeins framandi í mínum augum. Hún er særandi. Hún virðist tilheyra allt öðrum heimi en þeim sem við höfum búið við, þótt hún eigi að fara fram í nafni fólks sem glímir við þennan sjúkdóm. Og ég veit að þetta er ekki aðeins spurning um hvort mér finnist tiltekin auglýsing smekkleg.
Þetta er spurning um siðferðileg mörk.
Hugsum okkur að Píeta-samtökin, sem vinna að sjálfsvígsforvörnum og stuðningi við aðstandendur, eða samtök foreldra krabbameinssjúkra barna byggðu starf sitt upp með sambærilegum hætti. Að í kringum sjálfsvíg eða alvarleg veikindi barna yrði til umfangsmikið markaðskerfi með dýrum skartgripum, glæsilegum kynningarhátíðum og fjölmiðlaviðtölum þar sem starfsmenn mærðu eigin afrek og snilldina á bak við nýjustu herferðina.
Hugsum okkur kynningarmyndband í dúr við óskapnaðinn hér að ofan, þar sem foreldrar væru sýndir í rokkandi stuði eftir að sonur þeirra svipti sig lífi, eða vel farðaðir og skælbrosandi foreldrar þriggja ára stúlku sem greindist með krabbamein. Að sorgin og þjáningin væru sett í glæsilega umgjörð til að selja tákn, vörur og ímynd.
Myndum við telja þetta eðlilegt? Eða myndum við spyrja hvort eitthvað hefði farið alvarlega úrskeiðis í forgangsröðuninni?
Auðvitað þarf að afla fjár til að berjast gegn krabbameini. En fjáröflunin á að þjóna málefninu, ekki öfugt. Þegar vörumerkið, hönnunin og glæsileikinn eru orðin svo fyrirferðarmikil að fólk sem lifir með sjúkdómnum upplifir herferðina sem framandi og niðurlægjandi, þá er kominn tími til að spyrja hvað hafi orðið um dómgreindina. Sérstaklega þegar þetta fer saman við það gríðarlega ógagnsæi, þann skort á fjárhagslegum upplýsingum og þá afvegaleiðingu sem ég tel að hafi einkennt Krabbameinsfélag Íslands um árabil.