Einar Páll Svavarsson

Einar Páll Svavarsson er stjórnmálafræðingur, greinarhöfundur og ljósmyndari. Hann hefur starfað við sveitarstjórn, fyrirtækjarekstur, heilbrigðisþjónustu, vefsíðugerð og ferðaþjónustu. Rauði þráðurinn er áhugi á íslensku samfélagi, stjórnmálum og náttúru landsins, og á því að miðla upplýsingum í máli og myndum.

Uppvöxtur og nám

Einar Páll fæddist í Keflavík í febrúar 1956. Hann lauk landsprófi frá Héraðsskólanum á Laugarvatni og stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð í desember 1977. Haustið 1978 hóf hann nám í stjórnmálafræði, sem þá var ný námsbraut við Háskóla Íslands, og lauk BA-prófi 1982. Veturinn 1982–1983 stundaði hann framhaldsnám í stjórnmálafræði við University of Toronto.

Á háskólaárunum var hann virkur í Félagi vinstri manna og skrifaði fyrir Víkurfréttir í Keflavík. Þar kviknaði áhugi á að fjalla um samfélagsmál á skýran og aðgengilegan hátt. Sá áhugi hefur fylgt honum síðan.

Starfsferill

Eftir heimkomuna frá Toronto varð hann bæjarritari á Sauðárkróki og síðan framkvæmdastjóri Þykkvabæjarkartaflna í tvö ár. Þá rak hann eigin atvinnumiðlun í nokkur ár. Eftir það tók hann við framkvæmdastjórn Domus Medica, þar sem hann starfaði í níu ár.

Um aldamótin flutti hann til Kaliforníu og stofnaði fyrirtækið Flow Matrix, sem hann rak í sex ár. Hann hefur búið í Toronto, Seattle og San Diego og þekkir norður-amerískt samfélag af eigin raun.

Eftir að hann kom aftur heim starfaði hann við vefsíðugerð og síðar við ferðaþjónustu, einkum einka- og ljósmyndaferðir um Ísland.

Stjórnmál og opinber umræða

Einar Páll hefur alla tíð haft sterkan áhuga á stjórnmálum, innlendum sem erlendum, en aldrei sóst eftir stjórnmálaferli. Hann hefur kosið þá flokka sem hann taldi hverju sinni líklegasta til að færa samfélagið fram á við. Hann hefur verið félagi í Alþýðubandalaginu, Samfylkingunni, Sjálfstæðisflokknum og Viðreisn. Það segir meira um afstöðu hans til flokkshollustu en um flokkana sjálfa.

Hann telur að góð greining eigi ekki að segja lesandanum hvað hann eigi að hugsa. Hún eigi að draga fram staðreyndir, samhengi og mótsagnir svo lesandinn geti myndað sér eigin skoðun. Greinarnar á þessum vef eru skrifaðar í þeim anda. Þær byggjast á heimildavinnu og blaðamennsku fremur en fræðilegri sérhæfingu. Höfundurinn hefur oft skýra afstöðu en leitast við að gera öðrum sjónarmiðum skil. Rétt skal vera rétt, líka þegar staðreyndirnar styðja ekki fyrirfram gefna niðurstöðu.

Ljósmyndun og ferðalög

Ljósmyndun hefur verið helsta áhugamál Einars Páls frá unga aldri, ásamt jeppaferðum um hálendið. Hann hefur áratuga reynslu af akstri um hálendisvegi og afskekkt svæði á öllum árstímum.

Á vefnum Hit Iceland skrifaði hann hundruð greina um náttúru, jarðfræði, sögu, byggðir og leiðir. Hann lagði sérstaka áherslu á hálendið og staði sem fáir þekktu. Í kórónuveirufaraldrinum byggði hann upp Facebook-hópinn Ferðumst innanlands, sem náði um 17 þúsund meðlimum. Árið 2016 átti hann frumkvæði að því að kynna Stuðlagil fyrir ferðafólki með ljósmyndum og leiðarlýsingum. Gilið varð síðar einn þekktasti ferðamannastaður Austurlands. Greinar hans og ljósmyndir hafa birst í tímaritum og á fjölmörgum vefmiðlum.

Fjölskyldan

Einar Páll kynntist eiginkonu sinni, Guðrúnu Einarsdóttur, þegar hann var sautján ára. Þau hafa átt samleið í meira en hálfa öld. Þau eiga tvær dætur, Ernu fatahönnuð og Höllu myndlistarmann, og þrjú barnabörn.

Í september 2024 greindist Guðrún með alvarlegt heilakrabbamein. Sú reynsla varð til þess að Einar fór að kynna sér starfsemi, fjárreiður og lagalega stöðu Krabbameinsfélags Íslands. Hann hefur síðan skrifað ítarlegar og gagnrýnar greinar um félagið og samskipti þess við opinbera aðila.

Í dag er Einar Páll eftirlaunaþegi, greinarhöfundur, ljósmyndari og afi, en fyrst og fremst aðstandandi eiginkonu sinnar. Þrátt fyrir erfiðleikana segjast þau bæði aldrei hafa hætt að vera hamingjusöm og þakklát fyrir lífið sem þau hafa átt saman.

Close-up of a middle-aged man with gray hair, glasses, and a serious expression, wearing a dark shirt, standing in a room with abstract artwork on the wall in the background.

Senda mér skilaboð