Krabbameinsfélagið, Almannaheill Einar Páll Svavarsson Krabbameinsfélagið, Almannaheill Einar Páll Svavarsson

Formleg kvörtun vegna alvarlegra brota Krabbameinsfélags Íslands á siðareglum Almannaheilla

Formleg kvörtun til stjórnar Almannaheilla vegna meintra alvarlegra brota Krabbameinsfélags Íslands á siðareglum samtakanna. Erindið varðar ráðstöfun 75 milljóna króna til Framfarasjóðs án sérstakrar samþykktar aðalfundar, gjaldfærslu fjárhæðarinnar árið 2025 þótt sjóðurinn væri ekki formlega stofnaður fyrr en 2026, rangar upplýsingar í ársreikningi og ítrekað svarleysi við fjárhagslegum fyrirspurnum. Þess er krafist að stjórn Almannaheilla taki málið til formlegrar rannsóknar, afli nauðsynlegra gagna, úrskurði hvort brotið hafi verið gegn siðareglum samtakanna og taki afstöðu til nauðsynlegra úrbóta. Jafnframt er krafist skriflegrar og rökstuddrar niðurstöðu um ábyrgð stjórnenda KÍ á þessum alvarlegu álitaefnum.

Read More
Krabbameinsfélagið, Krabbamein Einar Páll Svavarsson Krabbameinsfélagið, Krabbamein Einar Páll Svavarsson

75 milljóna króna styrkur Krabbameinsfélags Íslands til sjóðs sem ekki var til

Krabbameinsfélag Íslands gjaldfærði 75 milljónir króna sem styrk árið 2025 til sjóðs sem var ekki stofnaður fyrr en 2026. Féð var í vörslu PwC, sem áritaði ársreikninginn fyrirvaralaust. Reikningurinn var lagður fyrir aðalfund án athugasemda og samþykktur. Gögnin vekja spurningar um gjaldfærsluna, upplýsingagjöf stjórnenda og óhæði endurskoðandans.

Read More
Einar Páll Svavarsson Einar Páll Svavarsson

Krabbameinsfélag Íslands og vörumerkjavæðing krabbameins

Við höfum kynnst því hvernig alvarlegur sjúkdómur breytir smám saman öllu því sem áður þótti sjálfsagt. Hvernig hver ný rannsókn getur breytt framtíðinni, hvernig daglegt líf þrengist og hvernig sorgin verður hluti af tilverunni löngu áður en nokkur endalok verða.Þess vegna er þessi glæsilega, glaðværa og sífellt umfangsmeiri markaðssetning ekki aðeins framandi í mínum augum. Hún er særandi. Hún virðist tilheyra allt öðrum heimi en þeim sem við höfum búið við, þótt hún eigi að fara fram í nafni fólks sem glímir við þennan sjúkdóm.

Read More
Heilbrigðismál, Krabbamein, Stjórnsýsla Einar Páll Svavarsson Heilbrigðismál, Krabbamein, Stjórnsýsla Einar Páll Svavarsson

Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands

Í júní 2026 birti ég þessa grein á Vísi um Krabbameinsskrá og meðferð viðkvæmra heilsufarsupplýsinga. Ég færi þar rök fyrir því að lagabreyting árið 2025 hafi fellt brott heimild landlæknis til að fela Krabbameinsfélagi Íslands rekstur skrárinnar. Samt héldu upplýsingar um krabbameinssjúklinga áfram að berast félaginu.

Read More
Krabbamein, Gagnsæi, Samfélagsmál Einar Páll Svavarsson Krabbamein, Gagnsæi, Samfélagsmál Einar Páll Svavarsson

Eru fjáröflunarherferðir KÍ, Mottumars og Bleika slaufan, siðferðilega réttlætanlegar?

Hvernig ráðstafar Krabbameinsfélag Íslands framlögum almennings? Í greininni rýni ég í fjármál og forgangsröðun félagsins og spyr hvort fjáröflunarherferðirnar Mottumars og Bleika slaufan séu siðferðilega réttlætanlegar án aukins gagnsæis og meiri framlaga til krabbameinsrannsókna.

Read More
Krabbamein, Samfélagsmál, Krabbameinsfélagið Einar Páll Svavarsson Krabbamein, Samfélagsmál, Krabbameinsfélagið Einar Páll Svavarsson

Hugleiðing um Ljósið og Krabbameinsfélag Íslands

Þessi hugleiðing birtist fyrst á Facebook-síðu minni í nóvember 2025 og vakti mikla athygli. Hún spratt af persónulegri reynslu okkar hjóna og því óþægilega bili sem við upplifðum milli ímyndar Krabbameinsfélags Íslands og starfsemi þess. Síðari athugun mín á fjármálum og forgangsröðun félagsins hefur styrkt þá skoðun mína að þar hafi orðið alvarleg afvegaleiðing.

Read More