Evrópumál, EES, Bókun35, Dómsmál Einar Páll Svavarsson Evrópumál, EES, Bókun35, Dómsmál Einar Páll Svavarsson

Smá skondið að Sigmundur Davíð vilji Baudenbacher til varnar Íslandi

Þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson lagði til að Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, yrði fenginn til að verja Ísland í máli ESA vegna bókunar 35 vakti það athygli. Ekki síst vegna þess að Baudenbacher hefur sjálfur um áratuga skeið verið einn áhrifamesti talsmaður þess að EES-rétturinn hafi raunverulegt gildi gagnvart ríkjunum. Greinin fjallar um þetta óvenjulega val, feril Baudenbachers og þá dóma og deilur sem gera tillöguna að minnsta kosti dálítið skondna.

Read More
Evrópumál, Alþingi, Löggjöf, Bókun35 Einar Páll Svavarsson Evrópumál, Alþingi, Löggjöf, Bókun35 Einar Páll Svavarsson

Ráðherrann, lagasmiðurinn og þingmaðurinn, þrjú hlutverk Sigríðar Á. Andersen í máli bókunar 35

ESA hefur nú höfðað samningsbrotamál gegn Íslandi vegna ófullnægjandi innleiðingar bókunar 35. Á sama tíma vilja formenn Framsóknarflokksins og Miðflokksins að Alþingi bíði með afgreiðslu frumvarpsins þar til EFTA-dómstóllinn hefur úrskurðað. Í tilefni af þessari stöðu er sérstaklega áhugavert að fara yfir þrjú ólík hlutverk Sigríðar Á. Andersen í málinu: ráðherrans, lagasmiðsins og þingmannsins.

Read More
Stjórnmál, Evrópumál Einar Páll Svavarsson Stjórnmál, Evrópumál Einar Páll Svavarsson

Er bókun 35 ný ákvörðun eða gömul skuldbinding?

Umræðan um bókun 35 hefur einkum snúist um fullveldi, framsal valds og stöðu EES-reglna gagnvart íslenskum lögum. En hvað felst í bókuninni í raun, hvers vegna er hún komin á dagskrá eftir meira en þrjátíu ár og hvaða áhrif hefði innleiðing hennar á vald Alþingis og réttindi einstaklinga og fyrirtækja?

Read More
Stjórnmál, Forseti, Ríksstjórn Einar Páll Svavarsson Stjórnmál, Forseti, Ríksstjórn Einar Páll Svavarsson

Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn

Þegar Ólafur Ragnar Grímsson hvatti þjóðina til að hafna því að hefja aðildarviðræður við ESB á ný var eðlilegt að spyrja hversu mikið vægi ferill hans ætti að hafa í þeirri ákvörðun. Ég skoða afstöðu hans til EFTA, NATO og EES, hlutverk hans í Icesave og bilið milli stjórnmálaímyndar og varanlegra verka.

Read More
Evrópumál, Stjórnmál, Verðtrygging Einar Páll Svavarsson Evrópumál, Stjórnmál, Verðtrygging Einar Páll Svavarsson

Áratuga uppgjöf gagnvart stjórn efnahagsmála og ESB sem valkostur

Greinin birtist upphaflega á vef Já Ísland 13. nóvember 2012, þegar aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins stóðu yfir. Umræðan var á þeim tíma mun harðari og pólitískari en hún er nú og orðalag greinarinnar ber þess greinileg merki. Hún er birt hér óbreytt sem heimild um umræðuna og sjónarmið höfundar á þeim tíma. Ekki hefur verið reynt að færa orðalag, röksemdir eða einstakar staðreyndir til nútímans.

Read More
Evrópumál, Lýðræði Einar Páll Svavarsson Evrópumál, Lýðræði Einar Páll Svavarsson

Lýðræðishallinn: Ísland og Evrópusambandið

Í þessari grein frá janúar 2012 fjalla ég um lýðræðishalla Evrópusambandsins, en beini athyglinni einnig að ákvörðunum íslenskra stjórnvalda um sameiginlegar eignir og stöðu Íslands innan EES. Getur lýðræðishalli líka orðið til hér heima, jafnvel þótt Alþingi og sveitarstjórnir hafi formlegt umboð til að taka ákvarðanir?

Read More