Alþingi játar „mistök“ sem alls ekki voru mistök - að tilskipun heilbrigðisráðuneytisins
Alþingi þrengdi heimildina til að fela öðrum rekstur heilbrigðisskráa í júní 2025. Krabbameinsfélagið hélt samt áfram rekstri Krabbameinsskrár og samningurinn var framlengdur. Haustið 2026 samþykktu 39 þingmenn að rýmka heimildina aftur með órökstuddri skýringu um „mistök“. Stjórnsýslan átti að laga sig að lögunum. Stjórnsýslan átti að laga sig að lögunum strax í júní 2025. Alþingi var þess í stað látið laga lögin að mistökum, vanrækslu og sinnuleysi landlæknis, ráðherra og stjórnsýslunnar.